Besta karfan ógild (myndskeið)

James Harden var stórkostlegur í nótt.
James Harden var stórkostlegur í nótt. AFP

James Harden var aðalmaðurinn á bakvið sigur Houston Rockets á Golden State Warriors í úrslitum Vesturdeildarinnar í NBA-deildinni í nótt. Karfa sem hann skoraði yfir allan völlinn fékk þó ekki að standa.

Harden skoraði 45 stig í leiknum sem er met hjá honum í úrslitakeppni. Houston þurfti á risaleik frá honum að halda eftir að hafa tapað fyrstu þremur leikjunum gegn Golden State og verið á barmi þess að falla úr leik, en Houston vann þennan fjórða leik 128:115.

Staðan var 69:59 í hálfleik en í þann mund sem flautað var til hálfleiks tók Harden skot yfir allan völlinn sem endaði ofan í körfunni. Tíminn var hins vegar runninn út rétt áður. Sjón er sögu ríkari:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert