Valur fær tvær frá KR

Bergþóra Holton Tómasdóttir og Dagbjört Dögg Karlsdóttir ásamt Ara Gunnarssyni …
Bergþóra Holton Tómasdóttir og Dagbjört Dögg Karlsdóttir ásamt Ara Gunnarssyni þjálfara Vals. Ljósmynd/Valur

Valur fékk góðan liðstyrk fyrir komandi átök í Dominos-deild kvenna í körfuknattleik þegar tveir leikmenn gengu frá samningi við félagið.

Bergþóra Holton Tómasdóttir hefur undanfarin ár spilað með KR en þangað kom hún frá Fjölni sem er uppeldisfélag hennar. Bergþóra er 21 árs bakvörður og skoraði að meðaltali 12,1 stig, tók 5,8 fráköst og átti 2,2 stoðsendingar í leik í á síðasta keppnistímabili.

Dagbjört Dögg Karlsdóttir kemur frá KR þar sem hún lék með yngri flokkum. Þrátt fyrir að vera aðeins 16 ára kom hún við sögu í nokkrum leikjum meistaraflokks á síðustu leiktíð. Dagbjört var ein af lykilleikmönnum U16 ára landsliðsins sem varð Evrópumeistari í C-deild í sumar og var m.a. valin í úrvalslið mótsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert