Íslendingaliðið Svendborg tapaði illa í danska körfuboltanum í kvöld þegar liðið heimsótti Næstved.
Næstved hafði betur 91:73 og vann seinni hálfleikinn 50:29 eftir jafnan fyrri hálfleik.
Axel Kárason skoraði 3 stig og tók 5 fráköst fyrir Svendborg en Arnar Guðjónsson er aðstoðarþjálfari liðsins og landsliðsþjálfari Íslands, Craig Pedersen, stýrir liðinu.