Öruggt hjá Durant og félögum

Dion Waiters og Kevin Durantunnu öruggan sigur í NBA-deildinni í …
Dion Waiters og Kevin Durantunnu öruggan sigur í NBA-deildinni í gærkvöldi. AFP

Kevin Durant og félagar í Oklahoma City Thunder unnu stóran sigur á New Orleans Pelicans í NBA-deildinni í körfuknattleik í gærkvöldi, 121:95, á heimavelli.

Durant og Russell Westbrook skoruðu 23 stig hvor í leiknum auk þess sem sá síðarnefndi átti 10 stoðsendingar. Serge Ibaka kom næstur með 18 stig. Þetta var 40. sigur liðsins á leiktíðinni í 54 leikjum.  Jrue Holiday og Antony Davis skoruðu 23 stig hvor fyrir Pelicans-liðið sem átti í vök að verjast frá upphafi. 

Í hinum leik NBA-deildarinnar vann Milwaukee Bucks lið Washington Wizards, 99:92,  í BMO Harris Bradley Center, heimavelli Bucks. Khris Middleton skoraði 27 stig fyrir heimamenn og Giannis Antetokounmpo og Jabari Parker skoruðu 17 stig hvor. Bradley Beal skorðai 19 stig fyrir gestina og John Wall 15. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert