Frábær kveðjustund

KR-ingar urðu Íslandsmeistarar þriðja árið í röð.
KR-ingar urðu Íslandsmeistarar þriðja árið í röð. mbl.is/Árni Sæberg

„Það er frábært að kveðja með Íslandsmeistaratitli. Maður vill alltaf vinna allt sem er í boði en það er sérstaklega sætti að verða Íslandsmeistari í síðasta leiknum mínum,“ sagði Helgi Már Magnússon, leikmaður KR, í samtali við Morgunblaðið eftir að hann spilaði sinn síðasta leik á glæsilegum ferli þegar KR tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn þriðja árið í röð með 84:70 sigri sínum gegn Haukum í fjórða leik liðanna í úrslitaeinvígi Dominos-deildar karla í körfuknattleik í gærkvöldi.

Gæsahúð um allan líkamann

„Það var geðveik tilfinning að labba út af í síðasta skipti fyrir framan þessa geggjuðu áhorfendur. Ég fékk gæsahúð um allan líkamann og sælutilfinningu sem erfitt er að lýsa,“ sagði Helgi Már um kveðjustundina.

„Það verður svakalega erfitt að kveðja þessa frábæru liðsfélaga og alla í kringum liðið. Við tökum næstu vikuna í að fagna þessu og þá verð ég líklega kominn með meira en nóg af þeim,“ sagði Helgi léttur í lundu.

Umfjöllun um Íslandsmeistaratitil KR-inga má lesa í heild sinni í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert