Houston Rockets ræður nýjan þjálfara

James Harden fær nýjan þjálfara hjá Houston Rockets.
James Harden fær nýjan þjálfara hjá Houston Rockets. AFP

Mike D'Antoni hefur verið ráðinn þjálfari NBA-liðsins Houston Rockets, en hann tekur við liðinu af J.B. Bickerstaff sem tók við liðinu í nóvember þegar Kevin McHale var rekinn. D'Antoni sem er 65 ára gamall er reynslumikill þjálfari, en Houston Rockets verður fimmta liðið sem hann stýrir í NBA-deildinni.

Houston Rockets hafnaði í áttunda sæti Vesturdeildarinnar, en liðið var með helmings sigurhlutfall í deildakeppninni. Houston datt svo út í fyrstu umferð úrslitakeppninnar eftir að hafa tapað 4:1 fyrir Golden State Warriors. 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert