Jakob í fararbroddi í sigurleik

Jakob Örn Sigurðarson á landsliðsæfingu.
Jakob Örn Sigurðarson á landsliðsæfingu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Jakob Örn Sigurðarson fór mikinn sem fyrirliði Borås í sænsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik í kvöld þegar liðið lagði Norrköping, 87:66.

Jakob var með þeim stigahæstu í liði Borås í leiknum með 12 stig. Hann tók jafnframt flest fráköst, sjö talsins, og gaf flestar stoðsendingar allra í liðinu eða fjórar. Þá spilaði hann mest allra leikmanna liðsins.

Þetta var þriðji sigur Borås eftir fyrstu fjórar umferðirnar í deildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert