Samstilltum hausana

„Við settumst niður eftir síðasta leik og ræddum okkar vandamál og samstilltum hausana,“ sagði Hallveig Jónsdóttir leikmaður Vals í körfuknattleik eftir stórsigur liðsins á Grindavík að Hlíðarenda í dag.

„Við vorum búnar að bíða allt of lengi eftir sigri, en þetta kom í dag og við erum svona góðar þegar allt er í lagi hjá okkur. Þetta er líka svo miklu skemmtilegra þegar vel gengur,“ sagði Hallveig sem átti flottan leik, en hún byrjaði á bekknum, kom inn og lék í 23 mínútur og gerði 24 stig á þeim tíma.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert