Þórsarar höfðu betur í Keflavík

Tobin Carberry og félagar hans í Þór Þorlákshöfn eru komnir …
Tobin Carberry og félagar hans í Þór Þorlákshöfn eru komnir í 8-liða úrslit bikarkeppninnar. mbl.is/Golli

Þór Þorlákshöfn er komið í 8-liða úrslit í bikarkeppni karla í körfuknattleik eftir 93:70 sigur á Keflavík í 16-liða úrslitum í dag.

Leikurinn var jafn og spennandi framan af í Keflavík í dag og voru heimamenn með eins stigs forystu að loknum fyrri hálfleik, 42:41. 

Þórsarar fóru á flug í seinni hálfleik og að loknum þremur leikhlutum voru gestirnir komnir með ágæta forystu, 65:57. Gestirnir settu svo í fluggírinn í lokaleikhlutanum og unnu öruggan sigur eins og áður sagði.

Tobin Carberry var langstigahæstur gestanna með 34 stig en Guðmundur Jónsson og Magnús Már Traustason skoruðu 18 stig hvor fyrir Keflvíkinga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert