Sjö þristar Kára (myndskeið)

Kári Jónsson og Alexa Kutch eru íþróttafólk vikunnar hjá Drexel.
Kári Jónsson og Alexa Kutch eru íþróttafólk vikunnar hjá Drexel. Ljósmynd/drexeldragons.com

Körfuboltamaðurinn Kári Jónsson var valinn íþróttamaður vikunnar hjá Drexel-háskólanum eftir frábæra frammistöðu í 78:72-sigri á liði High Point um helgina.

Kári skoraði 25 stig í leiknum en hann setti niður 7 af 12 þriggja stiga skotum sínum. Þristana má sjá í meðfylgjandi myndskeiði. Kári hefur skorað úr 47,8% þriggja stiga skota sinna á leiktíðinni og er þriðji stigahæsti leikmaður Drexel Dragons, sem hafa unnið fjóra af átta leikjum sínum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert