„Við kreistum þetta“

Darri Hilmarsson, leikmaður KR, var svo sannarlega ánægður að sleppa úr Grindavík með sigur en viðurkenndi að sigurinn hafi ekkert endilega verið fallegur. KR vann í miklum spennuleik í Dominos-deild karla í körfuknattleik í kvöld, 80:78.

Sjá frétt mbl.is: KR slapp með sigur úr Grindavík

Darra fannst andrúmsloftið yfir leiknum hafa verið þungt hjá báðum liðum en að Þórir Þorbjarnarson hafi að lokum skilað þessu fyrir sína menn. Darri sagði sína menn einhvern veginn hafa verið að bíða eftir sínu áhlaupi sem kom seint. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert