„Magic“ er mættur í heimahagana

Earvin
Earvin "Magic" Johnson. Myndin er tekinn þegar hann var innlimaður í Frægðarhöll NBA. AFP

Einn allra fremsti körfuknattleiksmaður sögunnar, Earvin „Magic“ Johnson hefur tekið við sem stjórnarformaður hins fornfræga körfuknattleiksveldis, LA Lakers.

Johnson gerði garðinn frægan með Lakers á níunda áratugunum og allt þar til hann hætti 1991 eftir að hafa greinst HIV-jákvæður. Hvorki hefur gengið né rekið hjá LA Lakers í NBA-deildinni í körfuknattleik undanfarin ár.

Með ráðningu Johnsons og tveggja annarra stjórnenda standa vonir til þess betri tíð sé framundan.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert