Haukur Helgi atkvæðamikill í sigurleik

Haukur Helgi Pálsson og félagar fögnuðu sigri.
Haukur Helgi Pálsson og félagar fögnuðu sigri. mbl.is/Árni Sæberg

Haukur Helgi Pálsson var atkvæðamikill í sigri Rouen gegn Denain, 75:57, í frönsku B-deildinni í körfuknattleik í kvöld.

Haukur Helgi, sem lék í 37 mínútur, skoraði 11 stig, tók 8 fráköst og gaf sex stoðsendingar en Rouen er í 15. sæti deildarinnar.

Martin Hermannsson skoraði 13 stig og gaf 6 stoðsendingar fyrir Charleville-Mezieres í tapi liðsins fyrir Lille, 74:71, í sömu deild en Martin og félagar hans eru í þriðja sæti deildarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert