Vonsvikinn með að vera kominn í frí

Einar Árni Jóhannsson, þjálfari Þórsara úr Þorlákshöfn, var að vonum vonsvikinn með niðurstöðu kvöldsins þegar hans menn voru sendir í sumarfrí í Grindavík, sem vann oddaleik liðanna í átta liða úrslitum Íslandsmótsins í körfuknattleik. 

Einar var ósáttur með margt í leik sinna manna en kvað þá hafa gert betur í þessum leik en hinum sem þeir spiluðu í Grindavík í þessari seríu. Einar staðfesti það að hann yrði áfram með lið Þórsara á komandi keppnistímabili.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert