Martin fór á kostum í sigri

Martin Hermannsson í leik með Charleville.
Martin Hermannsson í leik með Charleville. Ljósmynd/David Henrot

Martin Hermannsson fór fyrir sínum mönnum í franska liðinu Char­leville-Mezi­eres þegar það sigraði Evruex í frönsku B-deild­inni í körfuknatt­leik í kvöld.

Char­leville-Mezi­eres vann leikinn 96:87 en Martin skoraði 30 stig, tók tvö frákost og gaf auk þess fjórar stoðsendingar. 

Með sigrinum komust Martin og félagar upp í þriðja sæti deildarinnar. Fjórum umferðum er ólokið en Charleville á góða möguleika á að komast í umspil um sæti í A-deildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert