Tryggvi valinn í úrvalslið EM

Tryggvi Snær Hlinason var frábær á EM.
Tryggvi Snær Hlinason var frábær á EM. Ljósmynd/FIBA

Tryggvi Snær Hlinason hefur verið útnefndur í fimm manna úrvalslið á EM U20 ára landsliða sem lauk á Krít í kvöld.

Tryggvi fór mikinn með íslenska liðinu sem hafnaði í 8. sæti mótsins. Hann var með hæstu framlagspunkta allra leikmanna mótsins, tók flest fráköst allra og var í sjötta sæti yfir stigahæstu leikmenn mótsins með 113 stig í sjö leikjum.

Grikkland stóð uppi sem Evrópumeistari eftir sigur á Ísrael í úrslitaleik, 65:56.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert