Gríska liðið reyndist of sterkt

U16 ára landsliðið mátti þola tap í dag.
U16 ára landsliðið mátti þola tap í dag. Ljósmynd/KKÍ

Íslenska stúlknalandsliðið í körfuknattleik skipað leikmönnum 16 ára og yngri þurfti að sætta sig við tap gegn því gríska í B-deild Evrópumótsins sem fram fer í Skopje í Makedóníu. Lokatölur urðu 59:30.

Sigurbjörg Eiríksdóttir var stigahæst í íslenska liðinu með átta stig og Sigrún Ólafsdóttir skoraði sex. Íslenska liðið leikur gegn Svíþjóð í þriðja leik sínum í riðlinum á morgun. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert