Sterkir leikmenn hafa að undanförnu þurft að afboða sig á lokakeppni EM í körfuknattleik sem hefst í lok mánaðarins. Fyrir utan Grikkjann öfluga Giannis Antetokounmpo verður serbneski galdramaðurinn Milos Teodosic ekki heldur með.
Teodosic hefur ekki getað tekið þátt í undirbúningi Serba vegna meiðsla en hann mun leika með LA Clippers í vetur. Samherji hans hjá Clippers, Danilo Gallinari, verður ekki með Ítalíu vegna handarbrots. Litháen, sem mætir Íslandi í vináttulandsleik, getur ekki notað Deividas Gailius þar sem hann fékk matareitrun á móti í Frakklandi á dögunum.
Spánn og Real Madrid urðu fyrir áfalli þegar Sergio Llull meiddist og missir líklega af öllu tímabilinu. Nikola Mirotic verður heldur ekki með Spánverjum á EM.