Kristófer með annan stórleik

Kristófer Acox á EM í Helsinki.
Kristófer Acox á EM í Helsinki. mbl.is/Skúli B. Sigurðsson

Kristófer Acox, landsliðsmaður í körfuknattleik, fór aftur mikinn með Star Hotshots á Filippseyjum þegar hann lék sinn annan leik með liðinu í dag í sigri gegn Kia Picanto, 128:81.

Kristófer skoraði 19 stig og tók 15 fráköst og var bæði stigahæstur og frákastahæstur í liðinu. Hann átti einnig stórleik í frumraun sinni með liðinu á dögunum þegar hann skoraði einnig mest og tók flest fráköst; 18 stig og 18 fráköst.

Star Hotshots er í sjöunda sæti deildarinnar af tólf liðum þegar ein umferð er eftir og er öruggt í úrslitakeppnina en þangað fara átta efstu liðin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert