KR-ingar eru úr leik í Evrópubikarnum

Jón Arnór Stefánsson var stigahæstur.
Jón Arnór Stefánsson var stigahæstur. mbl.is/Golli

Íslandsmeistarar KR í körfuknattleik eru úr leik í fyrstu umferð Evrópubikarsins eftir annað tap fyrir Belfius Mons-Hainaut frá Belgíu, nú 84:71 á útivelli. Belgarnir unnu einvígið samanlagt með 34 stiga mun.

KR tapaði fyrri leiknum 88:67 og þurfti því heldur betur að snúa taflinu við í kvöld. KR-ingar héldu vel í við belgíska liðið og staðan í hálfleik var 41:38 fyrir heimaliðinu.

Jafnræðið hélt áfram í þriðja leikhluta og aldrei létu KR-ingar andstæðinginn fara fram úr sér. Þegar á leið tóku heimamenn hins vegar yfirhöndina og unnu að lokum öruggan sigur 84:71.

Jón Arnór Stefánsson var stigahæstur í liði KR með 20 stig og Darri Hilmarsson skoraði 17.

Leikurinn var í beinni útsendingu hér að neðan.


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert