Tíu leikir fóru fram í NBA-deildinni í körfuknattleik í nótt þar sem nýliðinn Lonzo Ball fór mikinn fyrir Los Angeles Lakers.
Ball, sem var annar í röðinni í nýliðavali deildarinnar, setti niður 29 stig, tók 11 fráköst og átti níu stoðsendingar í 132:130 sigri Lakers á Phoenix Suns í sínum öðrum NBA-leik.
Þá skoraði Kyrie Irving 21 stig og Al Horford 17 er Boston Celtics unnu Philadelphia 76ers 102:92 en lið Boston Celtics hafði tapað fyrstu tveimur leikjunum á tímabilinu.
Önnur úrslit má sjá hér að neðan:
115:111 Washington Wizards - Detroit Pistons
97:116 Milwaukee Bucks - Cleveland Cavaliers
109:91Charlotte Hornets - Atalanta Hawks
100:97 Minnesota Timberwolves - Utah Jazz
120:128 New Orleans Pelicans - Golden State Warriors
92:102 Philadelphia 76ers - Boston Celtics
96:114Indiana Pacers - Portland Trail Blazers
126: 121Brooklyn Nets - Orlando Magic
88:93Dallas Mavericks - Sacramento Kings
132:130Phoenix Suns - LA Lakers