LeBron fór á kostum í háspennu

LeBron James fór mikinn í nótt.
LeBron James fór mikinn í nótt. AFP

LeBron James og félagar í Cleveland Cavaliers máttu svo sannarlega hafa fyrir hlutunum í nótt þegar Charlotte Hornets komu í heimsókn í NBA-deildinni í körfuknattleik. Cleveland vann háspennusigur, 100:99.

LeBron James fór á kostum hjá Cleveland og skilaði þrefaldri tvennu; skoraði 27 stig, tók 16 fráköst og gaf 13 stoðsendingar. Hjá Charlotte skoraði Dwight Howard 20 stig og tók 13 fráköst.

LeBron va ekki sá eini sem fór á kostum í spennuleikjum, því Russell Westbrook skoraði 27 stig, tók 11 fráköst og gaf 11 stoðsendingar þegar Oklahoma City Thunder tapaði fyrir Detroit Pistons í spennuleik 99:98.

Meistarar Golden State Warriors unnu sórsigur á Chicago Bulls, 143:94. Stephen Curry skoraði 33 stig fyrir Golden State, en öll úrslit næturinnar má sjá hér að neðan.

Brooklyn Nets – Portland Trail Blazers 125:127
Atlanta Hawks – New York Knicks 116:104
Boston Celtics – Orlando Magic 118:103
Cleveland Cavaliers – Charlotte Hornets 100:99
Indiana Pacers – Toronto Raptors 106:104
Minnesota Timberwolves – Miami Heat 97:109
Oklahoma City Thunder – Detroit Pistons 98:99
Denver Nuggets – Memphis Grizzlies 104:92
Phoenix Suns – New Orleans Pelicans 91:115
Golden State Warriors – Chicago Bulls 143:94

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert