Kawhi Leonard snéri aftur á völlinn með San Antonio Spurs í NBA-deildinni í nótt en hann hafði ekkert leikið með á tímabilinu vegna meiðsla.
Leonard skoraði 13 stig þegar San Antonio tapaði fyrir Dallas 95:89. Leonard hefur verið afar mikilvægur hlekkur í liði San Antonio á síðustu árum en án hans tókst liðinu þó að vinna 19 af fyrstu 27 leikjunum.
Leonard var í liði ársins í NBA síðustu tvö tímabil en lærmeiðsli settu nú strik í reikninginn í upphafi tímabilsins.