Fimmti sigur Bulls í röð

Chicago Bulls hefur leikið vel síðan Nikola Mirotic sneri til …
Chicago Bulls hefur leikið vel síðan Nikola Mirotic sneri til baka eftir meiðsli. AFP

Chicago Bulls vann í nótt sinn fimmta leik í röð í NBA-deildinni í körfubolta þegar liðið sigraði Milwaukee Bucks á útivelli 115:109. Bobby Portis var stigahæstur gestanna með 27 stig en Giannis Antetokounmpo og Khris Middleton skoruðu 29 hvor fyrir Milwaukee.

Russel Westbrook og félagar í OKC gerðu góða ferð til Philadelphia og sigruðu heimamenn, 119:117, eftir þríframlengdan leik. Westbrook var stigahæstur gestanna með 27 stig en Joel Embiid skoraði 34 fyrir heimamenn.

Öll úrslit næturinnar:

Charlotte - Miami 98:104
Indiana - Detroit 98:104
Orlando - Portland 88:95
Philadelphia - OKC 117:119 
Washington - Clippers 100:91
Boston - Utah 95:107
Toronto - Brooklyn 120:87
Memphis - Atlanta 96:94
Denver - New Orleans 117:111
Houston - San Antonio 124:109

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert