Davis aftur yfir 40 stigin

Anthony Davis skoraði 4 stig fyrir New Orleans.
Anthony Davis skoraði 4 stig fyrir New Orleans. AFP

Anthony Davis, leikmaður New Orleans Pelicans, er í stuði þessa dagana í NBA-deildinni í körfuknattleik en þriðja leikinn í röð skoraði hann 40 stig eða meira.

Davis skoraði 45 stig þegar New Orlenas hafði betur gegn Boston Celtics í framlengdum leik, 116:113. Jrue Holiday skoraði 23 stig og DeMarcus Cousins 19. Kyrie Erving var stigahæstur í liði Boston með 27 stig.

Evan Fournier skoraði 32 stig fyrir Orlando í óvæntum sigri gegn Minnesota, 108:102. Jimmy Butler skoraði 28 stig fyrir Minnesota, Taj Gibson 18, og Karl-Anthony Towns 15.

Úrslitin í nótt:

Orlando - Minnesota 108:102
Boston - New Orleans 113:116
Denver - Dallas 105:102
Portland - Phoenix 118:111

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert