„Þetta var alls ekki nógu góður leikur hjá okkur. Auðvitað á maður að reyna að taka það góða úr þessu en ég er drullusvekkt núna,“ sagði Sóllilja Bjarnadóttir, leikmaður Breiðabliks, eftir 72:63-tap gegn Stjörnunni á útivelli í Dominos-deildinni í körfubolta í kvöld.
Stjarnan náði mest 15 stiga forystu í leiknum, en Breiðablik minnkaði muninn í tvö stig í fjórða leikhluta.
„Þetta var kaflaskipt hjá okkur, ég veit ekki nákvæmlega hvers vegna. Við vorum hvorki að spila vel í vörn né sókn á köflum. Svo tókum við vörnina í gegn og þá fór þetta að ganga betur.“
„Það er hægt að taka það að við komum til baka og gerðum þetta að leik en samt sem áður er ég ekki ánægð með leik minn eða leik liðsins. Við hefðum átt að mæta tilbúnari í þennan leik og taka hann.“
Liðin voru jöfn á stigum fyrir leikinn og segir Sóllilja það svekkjandi að missa Stjörnuna fram úr sér.
„Það er svekkjandi. Þetta var stór leikur og það hefði verið gott að labba með tvö stig héðan út en þær stóðu sig vel, það verður ekki tekið af þeim,“ sagði Sóllilja að lokum.