Góður leikur Söndru í sigri

Sandra Lind Þrastardóttir
Sandra Lind Þrastardóttir mbl.is/Haraldur Jónasson / Hari

Sandra Lind Þrastardóttir og stöllur hennar í Hørsholm 79ers unnu öruggan 83:49-sigur á Værløse í efstu deild Danmerkur í körfubolta í dag. Sandra átti góðan leik og skoraði átta stig, tók tvö fráköst og gaf þrjár stoðsendingar.

Hørsholm er með tíu stiga forskot á toppi deildarinnar. Sigurinn var sá 13. á leiktíðinni í 14 leikjum hjá liðinu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert