Fín innkoma Tryggva í sigri

Tryggvi Snær Hlinason skoraði sex stig í kvöld.
Tryggvi Snær Hlinason skoraði sex stig í kvöld. mbl.is/Kristinn Magnússon

Tryggvi Snær Hlinason og liðsfélagar hans í spænska körfuboltaliðinu Valencia höfðu betur gegn Fuenlabrada á heimavelli í efstu deild þar í landi í kvöld, 88:72. Tryggvi spilaði sex mínútur og skoraði á þeim sex stig og tók fjögur fráköst.

Eftir 17 leiki er Valencia í 2. sæti deildarinnar með 24 stig, átta stigum á eftir toppliði Real Madrid. Barcelona getur jafnað Tryggva og félaga á stigum með sigri á Andorra í kvöld. Fuenlabrada er í 4. sæti deildarinnar, en liðin voru jöfn að stigum fyrir leikinn í kvöld. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert