Hildur Björg Kjartansdóttir, landsliðskona í körfuknattleik, var fremst í flokki hjá liði sínu Leganés þegar liðið vann heimasigur gegn Almeria, 68:61, í spænsku B-deildinni í kvöld.
Hildur Björg skoraði 18 stig og var ekki bara stigahæst hjá sínu liði heldur á vellinum öllum. Hún tók þar að auki fjögur fráköst, en það var fyrst og fremst sterkur fjórði leikhluti sem skóp sigur Leganés.
Hildur Björg er í öðru sæti deildarinnar og er þar í hörðum slag, en Leganés er með 34 stig, tveimur stigum á eftir toppliðinu og aðeins stigi fyrir ofan liðið í þriðja sæti.