Óvíst hvort Leonard spili meira

Kawhi Leonard hefur verið að glíma við erfið meiðsli.
Kawhi Leonard hefur verið að glíma við erfið meiðsli. AFP

Körfuboltamaðurinn Kawhi Leonard gæti misst af því sem eftir lifir af tímabilinu í NBA-körfuboltanum vegna meiðsla í læri. Hann hefur aðeins leikið níu leiki á yfirstandandi leiktíð vegna meiðslanna. 

Gregg Popovich, þjálfari San Antonio, ræddi um Leonard við bandaríska fjölmiðla í dag: „Það kæmi mér á óvart ef Leonard spilar meira á leiktíðinni. Það er lítið eftir og hann er ekki enn klár. Ef hann spilar þá verður það mjög seint á leiktíðinni, en það kæmi mér á óvart,“ sagði Popovich.

Leon­ard var í liði árs­ins í NBA síðustu tvö tíma­bil og er hann einn mikilvægasti hlekkurinn í sterku liði San Antonio. Þrátt fyrir meiðsli Leonard hefur San Antonio spilað vel á leiktíðinni og er í 3. sæti vesturdeildarinnar með 35 sigra og 24 töp. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert