Viðar Örn í bann fyrir olnbogaskot

Viðar Örn Hafsteinsson.
Viðar Örn Hafsteinsson. mbl.is/Haraldur Jónasson / Hari

Aga- og úrskurðarnefnd KKÍ fundaði í vikunni um mál Viðars Arnar Hafsteinssonar, spilandi þjálfara Hattar, og komst að þeirri niðurstöðu að úrskurða hann í eins leiks bann vegna atviks sem átti sér stað í leik gegn Keflavík 12. febrúar síðastliðinn.

Viðar var rekinn út úr húsi fyrir að gefa leikmanni Keflavíkur olnbogaskot og má hann því hvorki spila, né vera á hliðarlínunni er Höttur mætir Þór Þ. í byrjun næsta mánaðar. Höttur er nú þegar fallinn úr deildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert