Fer sópurinn á loft í Frostaskjólinu?

Ragnar Helgi Friðriksson og Jón Arnór Stefánsson í baráttu í …
Ragnar Helgi Friðriksson og Jón Arnór Stefánsson í baráttu í fyrsta leik KR og Njarðvíkur. mbl.is/Árni Sæberg

Átta liða úrslitin í Dominos-deild karla í körfuknattleik halda áfram í kvöld en tveir leikir eru á dagskránni í kvöld.

Í DHL-höllinni eigast við Íslandsmeistarar KR-inga og Njarðvíkingar. Það er að duga eða drepast fyrir Suðurnesjamenn en tapi þeir leiknum í kvöld eru þeir úr leik. KR-ingar hafa verið sannfærandi í fyrstu tveimur leikjunum sem þeir höfðu betur í, 89:74, og 91:66.

Í Hertz-hellinum í Breiðholti mætast ÍR og Stjarnan en staðan í einvígi liðanna er jöfn, 1:1. ÍR vann fyrsta leikinn á heimavelli, 79:73, en Stjörnumenn jöfnuðu metin með sigri í Ásgarði, 64:57.

Báðir leikir kvöldsins hefjast klukkan 19.15 og verða þeir í beinni textalýsingu hér á mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert