Darrell Devonte Combs er fingurbrotinn og lék ekki með Stjörnunni þegar liðið tapaði fyrir ÍR í Seljaskóla í gærkvöldi. Garðbæingar tjáðu Morgunblaðinu að Combs væri fingurbrotinn og yrði ekki meira með á þessu keppnistímabili.
Combs er bandarískur miðherji og lék átta leiki fyrir Stjörnuna og skoraði í þeim 11,6 stig að meðaltali og gaf að jafnaði 3 stoðsendingar. Um hann ætti því að muna nokkuð í liði Stjörnunnar