Fær tíma til að jafna sig

Finnur Freyr Stefánsson og Jón Arnór Stefánsson
Finnur Freyr Stefánsson og Jón Arnór Stefánsson mbl.is/Árni Sæberg

Jón Arnór Stefánsson varð fyrir meiðslum í nára í leik KR og Njarðvíkur í Frostaskjóli í gærkvöldi. Jón valhoppaði af velli ef svo má segja og yfirgaf salinn væntanlega til að fá aðhlynningu.

Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er ólíklegt að meiðslin séu alvarlegs eðlis en Jón hefur raunar fengið högg á fæturna í öllum þremur leikjunum.

Hann fær hins vegar nokkuð góðan tíma á milli leikja í þetta skiptið fyrst KR vann Njarðvík 3:0 í 8-liða úrslitum. KR leikur væntanlega ekki í undanúrslitum fyrr en eftir 10 daga eða svo.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert