Hildur maður leiksins í sigri

Hildur Björg Kjartansdóttir
Hildur Björg Kjartansdóttir Morgunblaðið/Stella Andrea

Hildur Björg Kjartansdóttir átti stórleik fyrir Leganés sem vann 95:38-stórsigur á Vega Lagunera í spænsku B-deildinni í körfubolta í kvöld. Hildur skoraði 19 stig, tók 11 fráköst og gaf þrjár stoðsendingar á þeim 30 mínútum sem hún spilaði og var hún með flesta framlagspunkta af öllum.

Leganés er í 4. sæti deildarinnar með 40 stig, sex stigum á eftir Gran Canaria sem er í toppsætinu. Tvær umferðir eru eftir af deildinni, en efstu fjögur liðin keppa í umspili um sæti í efstu deild. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert