LeBron setti tóninn strax í upphafi

James Harden og félagar í Houston virðast ætla að sópa …
James Harden og félagar í Houston virðast ætla að sópa Jimmy Butler og félögum í Minnesota úr leik. AFP

Houston Rockets er komið í 2:0 í viðureign sinni gegn Minnesota Timberwolves í fyrstu umferð úrslitakeppninnar í NBA-deildinni í körfuknattleik. Cleveland Cavaliers og Utah Jazz jöfnuðu viðureignir sínar þar sem LeBron James fór á kostum.

LeBron setti niður heil 46 stig og tók 12 fráköst er Cleveland vann Indiana Pacers 100:97. LeBron setti tóninn strax í upphafi og setti niður fyrstu 13 stig leiksins og var hann með 29 stig í hálfleik. Cleveland hafði þó heppnina með sér undir lokin er Victor Oladipo hitti ekki úr þristarskoti sínu sem hefði jafnað leikinn þegar 27 sekúndur voru eftir.

Kevin Love skoraði 15 stig fyrir Cleveland en meiddist þegar skammt var eftir af leiknum á sömu hönd og hann handarbrotnaði á fyrr á tímabilinu. Kappinn er liðinu afar mikilvægur og gæti hann misst af næstum leikjum liðsins.

Nýliðinn Donovan Mithell skoraði 13 af 28 stigum sínum í fjórða leikhluta fyrir Utah Jazz sem jafnaði viðureign sína við Oklahoma City Thunder á útivelli. Derrick Favors átti einnig góðan leik og setti niður 20 stig og tók 16 fráköst í liði Jazz á meðan Ricky Rubio setti niður 22 stig og átti níu stoðsendingar.

Russel Westbrook var með 19 stig og 13 stoðsendingar og níu fráköst fyrir Oklahoma. Paul George var með 18 stig og Carmelo Anthony 17 stig en aðeins 33% skotnýtingu.

Chris Paul var með 27 stig og varamaðurinn Gerald Green 21 stig í öruggum sigri Houston á Minnesota. Houston lenti undir í 1. leikhluta en sneri leiknum við í þeim næsta er liðið skoraði 37 stig þar sem Green setti niður þrjá þrista. James Harden átti frábæran fyrsta leik í einvíginu og setti þá niður 44 stig en hafði hægara um sig í dag.

Úrslit næturinnar:

Cleveland Cavaliers - Indiana Pacers 100:97 (1:1)

Oklahoma City Thunder - Utah Jazz 95:102 (1:1)

Houston Rockets - Minnesota Timberwolves 102:82 (2:0)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert