Philadelphia þarf einn sigur í viðbót

Ben Simmons og Goran Dragic eigast við.
Ben Simmons og Goran Dragic eigast við. AFP

Philadelphia 76ers hafði betur gegn Miami Heat er liðin mættust í fjórða skipti í 1. umferð úrslitakeppninnar í NBA körfuboltanum í Bandaríkjunum, 106:102.

Miami var með 61:56-forystu í hálfleik og þriðji leikhlutinn var spennandi. Philadelphia var hins vegar sterkari aðilinn undir lokin og er staðan í einvíginu nú 3:1, Philadelphia í vil. 

JJ Redick skoraði 24 stig fyrir Philadelphia og Dwyane Wade skoraði 25 fyrir Miami. Liðin mætast í fimmta skipti aðfaranótt fimmtudags og getur Philadelphia þá tryggt sér þátttökurétt í næstu umferð. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert