Kveður Íslandsmeistarana

Ingvar Þór Guðjónsson.
Ingvar Þór Guðjónsson. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ingvar Þór Guðjónsson, þjálfari Íslandsmeistara Hauka í körfuknattleik kvenna, er hættur þjálfun Hafnarfjarðarliðsins. Þetta staðfesti hann við karfan.is í kvöld.

Haukar urðu bæði Íslands- og deildarmeistarar undir hans stjórn í vetur en hann hefur þjálfað flesta leikmenn liðsins meira og minna undanfarin átta ár, í yngri flokkum og meistaraflokki Hauka.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert