Portland kom fram hefndum

Portland Trail Blazers vann sumardeild NBA.
Portland Trail Blazers vann sumardeild NBA. Ljósmynd@TrailBlaizers

Portland Trail Blazers bar sigur úr býtum á móti Los Angeles Lakers í úrslitaleik sumardeildar NBA-körfuboltans í Bandaríkjunum í nótt, 91:73. Leikið var í Las Vegas. Sömu lið mættust í úrslitaleik keppninnar á síðasta ári og hafði Lakers þá betur. 

Leikurinn í nótt náði aldrei að vera spennandi, en Portland mætti með ansi reynslumikið lið til leiks og höfðu sjö leikmenn liðsins leikið í NBA-deildinni áður á meðan aðeins fjórir leikmenn Lakers voru með reynslu í deild þeirra bestu. 

KJ McDaniels var stigahæstur hjá Portland með 17 stig og Wade Baldwin IV skoraði 14 stig. Hjá Lakers var Josh Hart, sem valinn var mikilvægasti leikmaður keppninnar fyrir leik, með tólf stig og Jeff Ayres gerði ellefu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert