Körfuknattleiksdeild Skallagríms hefur samið við króatíska framherjann Matej Buovac um að leika með liðinu í Dominos-deildinni í vetur.
Buovac er 25 ára gamall, 201 sentimetri á hæð og leikur stöðu framherja. Hann lék með KK Zagreb í króatísku úrvalsdeildinni í fyrra og var þar með 10,7 stig að meðaltali í leik. Þar áður lék hann í háskólaboltanum í Bandaríkjunum og var, á útskriftartímabili sínu, með níu stig að meðaltali í leik fyrir lið Sacred Heart University.
Hann á einnig að baki landsleiki með U18 og U20 liðum Króatíu.