Bandarískur leikstjórnandi í Skallagrím

Bryeasha Blair.
Bryeasha Blair. Ljósmynd/@SCStateAthletic

Körfuknattleiksdeild Skallagríms hefur samið við leikstjórnandann Bryeasha Blair og mun hún spila með liðinu á komandi leiktíð.

Blair kemur frá South Carolina State-háskólanum í Bandaríkjunum þar sem hún hefur leikið síðustu fjögur ár. Á síðasta ári skoraði hún 15,6 stig og tók 4,3 fráköst að meðaltali í 30 leikjum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert