Íslenska karlalandsliðið í körfubolta skipað leikmönnum 16 ára og yngri tapaði fyrir heimamönnum í Bosníu, 86:59, í átta liða úrslitum í B-deild Evrópumótsins sem fram fer í Sarajevó.
Bosníumenn unnu þrjá af fjórum leikhlutunum og var sigurinn aldrei í hættu. Íslenska liðið spilar því á næstu dögum um sæti 5.-8, á meðan Bosníumenn hafna í einu af fjórum efstu sætunum.
Magnús Helgi Lúðvíksson var stigahæstur í íslenska liðinu með tíu stig og Ástþór Atli Svalason gerði níu.