Tryggvi með fjögur stig í slæmu tapi

Tryggvi Snær Hlinason skoraði fjögur stig fyrir Obradoiro í kvöld.
Tryggvi Snær Hlinason skoraði fjögur stig fyrir Obradoiro í kvöld. mbl.is/Kristinn Magnússon

Tryggvi Snær Hlinason skoraði 4 stig fyrir lið sitt Obradoiro þegar liðið steinlá á heimavelli fyrir Real Madrid í undanúrslitum Meistarakeppni Spánar í körfuknattleik en leiknum lauk með 81:61-sigri Real Madrid.

Obradoiro byrjaði leikinn illa og var undir eftir fyrsta leikhluta, 20:12. Real Madrid vann annan leikhlutann 22:20 en í þriðja leikhluta fóru leikmenn Obradoiro illa að ráði sínu og skoruðu einungis átta stig á meðan Real Madrid skoraði 28 stig.

Tryggvi Snær spilaði í tæplega 24. mínútur með Obradoiro í kvöld og tók 3 fráköst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert