LeBron James er byrjaður að ylja stuðningsmönnum LA Lakers í Staples Center. Kappinn skoraði flautukörfu af löngu færi í nótt og knúði með henni fram framlengingu gegn San Antonio Spurs.
Ekki dugði það til sigurs því Texas-búarnir höfðu betur að framlengingu lokinni 143:142.