Haukur og Martin góðir í Evrópukeppninni

Haukur Helgi Pálsson í leik með íslenska landsliðinu.
Haukur Helgi Pálsson í leik með íslenska landsliðinu. mbl.is/Kristinn Magnússon

Haukur Helgi Pálsson og félagar hans í franska liðinu Nanterre unnu stórsigur gegn Bonn á útivelli 81:57 í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í körfuknattleik í kvöld.

Haukur Helgi átti fínan leik og skoraði 13 stig, tók 5 fráköst og gaf 2 stoðsendingar í leiknum en hann lék í rúma 31 mínútu í leiknum.

Martin Hermannsson og félagar hans í Alba Berlín hrósuðu sigri í Evrópubikarnum en Berlínarliðið lagði Gdynia að velli 82:68. Martin lék vel með þýska liðinu en hann skoraði 16 stig, tók 4 fráköst, gaf 3 stoðsendingar og stal einum bolta.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert