Reykjavíkurslagur í Breiðholtinu

Benedikt Blöndal Val og Hákon Örn Hjálmarsson ÍR.
Benedikt Blöndal Val og Hákon Örn Hjálmarsson ÍR. mbl.is/Árni Sæberg

ÍR og Valur mætast í kvöld í Hertz-hellinum í Breiðholti í Dominos-deild karla í körfuknattleik. 

Leikurinn er sá fyrsti í 7. umferð deildarinnar. ÍR er með 6 stig í 6. sæti deildarinnar en Valur er með 2 stig í 10. - 12. sæti. 

Bæði lið unnu leiki sína í síðustu umferð. ÍR--ingar fóru til Þorlákshafnar og unnu 92:88 og Valsmenn komu nokkuð á óvart þegar þeir lögðu Stjörnuna 97:92 á Hlíðarenda. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert