Hávaxinn Króati til Skallagríms

Finnur Jónsson, þjálfari Skallagríms.
Finnur Jónsson, þjálfari Skallagríms. mbl.is/Kristinn Magnússon

Finnur Jónsson, þjálfari Skallagríms í Dominos-deildinni í körfuknattleik, hefur sótt liðsauka til Króatíu og nælt í 206 cm háan leikmann sem er væntanlegur til landsins á næstu dögum. 

Króatinn heitir Domagoj Samac og líklegt verður að teljast að hann kunni ýmislegt fyrir sér í íþróttinni því Samac lék leiki með U-20 ára landsliði Króata á sínum tíma en Króatía er ein sterkasta körfuboltaþjóð í Evrópu. 

Samac er nokkuð reyndur því hann hefur leikið í Króatíu, Rússlandi, Litháen og Lettlandi.

Á Facebooksíðu Skallagríms segir að fyrsti leikur Samac verði gegn Þór Þorlákshöfn 22. nóvember. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert