NBA-leikmaður kemur inn fyrir Martin

Jordan Crawford og Avery Bradley ræða saman í leik með …
Jordan Crawford og Avery Bradley ræða saman í leik með Boston Celtics. AFP

Martin Hermannsson hefur fengið nýjan samherja hjá þýska körfuknattleiksliðinu Alba Berlín. Martin er í stóru hlutverki hjá liðinu en er meiddur núna og hefur félagið fengið fyrrum NBA-leikmann til þess að koma inn í stað hans á meðan.

Leikmaðurinn sem um ræðir er Jordan Crawford. Hann er þrítugur og á að baki 281 leik í NBA-deildinni með fimm mismunandi félögum, Atlanta Hawks, Washington Wizards, Boston Celtics, Golden State Warriors og New Orleans Pelicans.

Crawford fékk aðeins eins mánaðar samning, en búist er við því að Martin muni snúa aftur eftir þann tíma. Martin tognaði á ökkla í Evrópuleik í byrjun mánaðarins og átti hann að vera frá í sex vikur að hámarki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert