Danny Green var hetja Toronto Raptors þegar liðið lagði Orlando Magic að velli í NBA-deildinni í körfuknatteik í nótt.
Green skoraði sigurkörfuna á lokasekúndu leiksins og Toronto hrósaði sigri 93:91. Liðið er efst í Austurdeildinni, hefur unnið 14 leiki en tapað 4. Kawhi Leonard var stigahæstur í liði Toronto með 18 stig og Pascal Siakam kom næstur með 14.
Í Vesturdeildinni er Portland Trail Blazers efst með 12 sigra og 5 töp en liðið vann sigur í nótt á New York 118:114. C.J. McCollum skoraði 31 stig fyrir Portland og Damian Lillard 29 en hjá New York, sem tapaði sínum sjötta leik í röð, var Tim Hardaway Jr. atkvæðamestur með 32 stig.
Úrslitin í nótt:
Toronto - Orlando 93:91
Washington - LA Clippers 125:118
Brooklyn - Miami 104:92
Portland - New York 118:114