Troðsla Harden gegn Lakers (myndskeið)

James Harden #13 og Eric Gordon #10.
James Harden #13 og Eric Gordon #10. AFP

James Harden sýndi alls kyns tilþrif í nótt þegar Houston vann LA Lakers í NBA-deildinni í körfuknattleik eins og meðfylgjandi myndskeið sýnir ágætlega. 

Harden skoraði 50 stig í leiknum og fór á kostum en í myndskeiðinu má sjá glæsilega troðslu hjá bakverðinum en einnig þriggja stiga körfu vel fyrir utan þriggja stiga línuna. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert